Auglýsingablaðið

Kæru sveitungar
Þar sem Pósturinn hættir með magnpóst þann 1. janúar 2024 mun dreifing auglýsingablaðsins leggjast sjálfkrafa af.
Áfram verður blaðið samt sett upp á þriðjudögum og birt á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Til að byrja með verða prentuð út nokkur eintök sem verða aðgengileg í anddyri skrifstofu að Skólatröð 9 og í Íþróttamiðstöðinni fyrir gesti og gangandi.

Annað verður með svo til óbreyttu sniði þ.e. auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 10:00 á þriðjudögum fyrir áðurnefnda prentaða útgáfu.
Íbúum stendur áfram til boða að senda inn sína viðburði í viðburðadagatal á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar. Hér er slóðin og valið er „Senda inn viðburð“ https://www.esveit.is/is/mannlif/vidburdir

 

Það er af sem áður var nema ennþá frítt og nú rafrænt blað:
Auglýsingablaðið er hugsað fyrir sveitunga að auglýsa sér að kostnaðarlausu.
Skilafrestur er fyrir kl. 10:00 á þriðjudögum og er blaðinu dreift á miðvikudögum skv. dreifingardagatali póstsins (Eyjafjarðarsveit er "blá").
Senda þarf texta, þ.e. texta í tölvupósti eða í word fylgiskjali á esveit@esveit.is eða hringja í 463-0600. Hægt er að birta logo eða mjög litla mynd með auglýsingu sem prentast í svart/hvítu.
Hámarksstærð auglýsinga er 100 orð (mögulega þarf þó að stytta texta ef mikið magn auglýsinga er í það skipti). Endurtekningu þarf að stilla í hóf. Auglýsingu er sleppt ef hún hefur birst í fyrra blaði og næsta blað er fullt af nýjum auglýsingum.

Getum við bætt efni síðunnar?