Auglýsingablaðið

885. TBL 04. maí 2017 kl. 10:41 - 10:41 Eldri-fundur

Sveitarstjórnarfundur
496. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, miðvikudaginn 10. maí og hefst hann kl. 15:00. 
Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.


Vinnuskólinn – Ath. breytt dagsetning: byrjar 12. júní
Eyjafjarðarsveit býður unglingum fæddum 2001, 2002 og 2003 vinnu við umhverfisverkefni á komandi sumri. Starfið hefst 12. júní.
Umsækjendur þurfa að skila inn umsóknum fyrir 30. maí á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða á netfangið esveit@esveit.is. Í umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala og launareikningur umsækjanda, nafn forráðamanns og sími.
Skrifstofan


Framhaldsskólaakstur næsta skólaár
Núverandi og tilvonandi nemendur MA og VMA sem hyggjast nýta sér akstur á vegum sveitarfélagsins næsta skólaár, ef í boði verður, eru beðnir um að hafa samband á skrifstofu sveitarfélagsins á netfangið esveit@esveit.is eða í s. 463-0600 fyrir 12. júní. Rætt verður um framhald þjónustunnar í ljósi upplýsinga sem þá liggja fyrir. Því er mikilvægt er að fá sem gleggstar upplýsingar.
Starfsfólk skrifstofu


Messuheimsókn að sunnan í Grundarkirkju 7. maí
Sunnudaginn 7. maí nk. verður messa í Grundarkirkju kl. 13:30. Auk heimakirkjukórs mun Kirkjukór Stóra-Núps- og Ólafsvallasókna syngja við messuna. Organistar kóranna, Daníel Þorsteinsson og Þorbjörg Jóhannsdóttir, stjórna söngnum og leika undir á orgel. Sungnir verða sálmar sr. Valdimars Briem sem var fæddur á Grund í Eyjafirði en ólst upp frá 10 ára aldri í Hruna í Hrunamannahreppi og þjónaði nánast allan sinn prestskap á Stóra-Núpi í Gnúpverjahreppi. Prestar í messunni verða sr. Hannes Örn Blandon og sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson sóknarprestur í Hrunaprestakalli. Messukaffi á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir!


Vortónleikar Karlakórs Eyjafjarðar verða haldnir í Laugarborg föstudaginn 12. maí kl. 20:30 og í Glerárkirkju laugardaginn 13. maí kl. 16:00.
Söngstjóri Guðlaugur Viktorsson.
Nánar auglýst í næstu Dagskrá.


Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Funa auglýsir:
Æskulýðsfundur og pizza í boði Funa, sunnudaginn 7. maí kl. 12:00. Kynnum starfið framundan, m.a. fyrirhugað TREC námskeið og hugsanlega utanlandsferð fyrir unglingana okkar (13-18 ára). Hvetjum alla áhugasama hestakrakka til að mæta og eru foreldrar sérstaklega velkomnir með! Við viljum biðja fólk um að skrá sig í gegnum netfangið annasonja@gmail.com svo við getum áætlað magn af pizzum :-) Nýir félagar velkomnir!


Hestamannafélagið Funi auglýsir TREC námskeið
Fyrir börn, unglinga og ungmenni sem hefst 13. maí og lýkur þann 11. júní. Kennt verður alla laugardaga og sunnudaga. Námskeiðið hentar bæði minna vönum sem og lengra komnum og er félögum að kostnaðarlausu. ATH. að þeir sem ekki eiga hest geta mögulega leigt hest og reiðtygi fyrir námskeiðið. Leiðbeinandi er Anna Sonja Ágústsdóttir og tekur hún við skráningu og veitir nánari upplýsingar í síma 846-1087/463-1294 eða á netfanginu annasonja@gmail.com.


Verðskrá og staðsetning tækja Búnaðarfélags Eyjafjarðarsveitar
Torfur (Þórir s: 862-6832) Ytri- Tjarnir (Benjamín s: 899-3585)

Haugsuga                   16.000                         Mykjudreifari 10 tonn         16.000
Mykjudreifari 6 tonn  10.000                      Mykjudreifari 8 tonn           12.000
Vendiplógur 4 skeri   20.000                        Vendiplógur 3 skeri            16.000
Plógur 4 skeri            10.000                         Plógur 4 skeri                   10.000
Flagjafni                    8.000                            Plógur 2 skeri                   5.000
Akurvalti                  14.000                          Akurvaltari                       14.000
Vinnupallar              5.000                            Kílplógur                           10.000
Steypuvél                 2.000                             Vatnsvalti                         6.000
Snittklúbbur             Ekkert gjald   

Rukkað er fyrir heilan og hálfan dag. Farið er fram á að tækjunum sé skilað hreinum og smurðum að notkun lokinni. Vinsamlegast látið vita strax eftir að tækjunum er skilað hver notkunin var með annaðhvort símtali eða sms til umsjónarmanna.
Kv. stjórn Bf. Eyjafjarðarsveitar


Aðalfundur Framsóknarfélags Eyjafjarðarsveitar
Framsóknarfélag Eyjafjarðarsveitar heldur aðalfund þann 8. maí, kl. 20:00 á Lamb inn. Venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félagar velkomnir.
Framsóknarfélag Eyjafjarðarsveitar


Kæru kvenfélagskonur í Iðunni
Við boðum til vorfundar, laugardaginn 13. maí nk. kl. 11:00.
Staðsetning: Smámunasafn Sverris Hermannssonar.
Venjuleg vorfundarstörf og veitingar í boði 2. flokks í lok fundar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar.
Nýjar konur velkomnar.
Stjórnin


Frá Hjólreiðafélagi Akureyrar – Hrafnagil Time Trial
Hjólreiðafélag Akureyrar verður með reiðhjólamótið Hrafnagil Time Trial næsta laugardag þann 6.maí. Fyrstu keppendur eru ræstir kl. 10.00 frá afleggjaranum í Kjarna og hjólað verður fram eftir í gegnum Hrafnagilshverfið og til baka aftur. Áætlað er að mótið taki um 2 klukkustundir og má gera ráð fyrir talsverðri hjóla-umferð á meðan.
Það er ósk HFA að íbúar Eyjafjarðarsveitar taki þessu framtaki vel, sýni tillitsemi í umferðinni og gaman væri ef fólk myndi hvetja keppendur áfram þegar þau koma í hverfið. Skráning á mótið er í gegnum heimasíðu félagsins www.hfa.is.
Mótanefnd HFA

Getum við bætt efni síðunnar?