Umferðarnefnd

124. fundur 10. apríl 2013 kl. 12:12 - 12:12 Eldri-fundur

124. fundur umhverfisnefndar Eyjafjardarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, þriðjudaginn 9. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Brynhildur Bjarnadóttir formaður, Hulda M Jónsdóttir aðalmaður, Valur ásmundsson aðalmaður, Björk Sigurðardóttir aðalmaður og Jónas Vigfússon sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði:  Björk Sigurðardóttir, fundarritari.

 

Dagskrá:

1.  1302007 - Eyðing skógarkerfils með vegum - styrkumsókn til Vegagerðarinnar 2013
 Vegagerð ríkisins hefur samþykkt að veita umhverfisnefnd styrk að upphæð 500.000 kr. til eyðingar kerfils í vegköntum. Formanni falið að vinna að rannsóknaráætlun fyrir verkið.
   
2.  0711031 - Kerfill - átaksverkefni um eyðingu kerfils
 Rætt var um aðgerðar - og framkvæmdaráætlun fyrir árið 2013. Sveitastjóra er falið að vinna nánar að undirbúningi komu Seeds hópsins sem fyrirhugað er að fá til landsins í byrjun júni. Formaður sér um að fullvinna áætlunina og senda landbúnaðar - og atvinnumálanefnd til kynningar.
Umhverfisnefnd skorar á Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar að slást í lið með Eyjafjarðarsveit í baráttunni gegn útbreiðslu og við eyðingu skógarkerfils. á landamærum þessara sveitarfélaga er víða að finna miklar kerfilsbreiður og því nauðsynlet að bæði sveitarfélögin vinni að þessu mikilvæga verkefni.
   
3.  1212003 - Skógræktarfélag íslands samþykkir ályktun varðandi lúpínu
 Lagt fram til kynningar.
   
4.  1302018 - Reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins - beiðni um umsögn
 Lagt fram til kynningar.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30

Getum við bætt efni síðunnar?