Skipulagsnefnd

204. fundur 20. júní 2013 kl. 09:17 - 09:17 Eldri-fundur

204. fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, miðvikudaginn 19. júní 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson, Emilía Baldursdóttir, Sigurður Eiríksson, Jón Stefánsson og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, skipulagsfulltrúi.

 

Dagskrá:

1.  1306007 - Beiðni um umsögn á skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar Kjarna, Hamra og Götu Sólarinnar
 Lagt fram til kynningar.
   
2.  1306017 - Beiðni um umsögn vegna aðalskipulagsbreytingu á hafnarsvæði, reiðleiðum og íbúasvæði við Hesjuvelli
 Lagt fram til kynningar.
   
3.  1306021 - Aðkoma að Djúpaseli - endurupptaka
 Sigurður Valdimarsson óskar eftir endurupptöku vegna aðkomu að frístundahúsi við Djúpadalsvirkjun.
Skipulagsfulltrúa falið að ræða við málsaðila og leyta lausna.
   
4.  1306020 - Hrafnagilshverfi IV - breyting á deiliskipulagi
 Fjallað var um tillögur að breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis austan Eyjafjarðarbrautar vestri.
Skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulaginu verði breytt þannig að raðhúsalóðir verði á suðurmörkum svæðisins í samræmi við teikningar arkitekts en skipulagi verði ekki breytt að öðru leyti.
Lagt til að skipulagið fari í auglýsingu með þessari breytingu.
   
5.  1304010 - þverárnáma deiliskipulag
 Fyrstu drög að deiliskipulagi lögð fram til kynningar.
   
6.  1306026 - Kolgrímastaðir efnistaka
 þverá golf óskar eftir leyfi til að vinna allt að 2.500 m³ af slitlagsefni úr skriðu í landi Kolgrímastaða.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið, með fyrirvara um samþykki landeiganda og að svæðið þoli þessa efnistöku.
Nánari skilyrði um vinnslu og frágang verði sett í framkvæmdaleyfi.
   
7.  1306019 - Kynning á breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, akstursíþrótta- og skotsvæði
 Lagt fram til kynningar.
   


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00

Getum við bætt efni síðunnar?