Viðburðir

Senda inn viðburð
4. maí

SÖGULOK - tónleikar í tali og tónum

Kynntur verður söguheimur tengdur þjóðsagnaarfinum og á milli verða leikin lög bæði þekkt íslensk þjóðlög, írskt þjóðlag og lög sem tengjast hulduheimum. Nýja bókin mín ÓLGA, kynjaslangan verður til sölu en einnig er að hægt að kaupa miða og bók í gegnum tix.is. Miðaverð 2.500 kr. en frítt er fyrir börn á skólaaldri. Hlakka til að sjá ykkur, kveðja Hrund.
20. maí

Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024

Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024 verður haldinn mánudagskvöldið 20. maí, annan í hvítasunnu, kl. 20:00 á Ytra-Gili. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Athugið að framboðsfrestur til stjórnar rennur út viku fyrir aðalfund. Veitingar verða í boði og vonumst við til að sjá sem flesta. Nýir félagar eru boðnir velkomnir. Kær kveðja, Hjálparsveitin Dalbjörg.
26. maí

Kaffihlaðborð Hjálparinnar í Funaborg

Hið margrómaða kaffihlaðborð kvenfélagsins verður haldið í Funaborg, sunnudaginn 26. maí kl. 13:30, borðin svigna undan kræsingum. Verð fyrir fullorðna 3.000kr, grunnskólabörn 1.500kr og yngri börn borða frítt
28. maí

Frá ferðanefnd Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit - Skráning fyrir 1. maí

Vorferð félagsins verður farin 28.-31. maí. Gist verður á Hóteli Múla í Reykjavík í 3 nætur. Ýmis kennileiti verða heimsótt bæði í Reykjavík og á Reykjanesi. Eigum auk þess heimboð hjá Guðna forseta. Fólk er beðið að skrá sig fyrir 1. maí. Kostnaður per mann er ca. 100 þúsund en til að fá nákvæmt verð þurfum við að fá sem fyrst fjölda þátttakenda. Bestu kveðjur, Páll Ingvarsson, sími 661-7627, pall.reyk@gmail.com Leifur Guðmundsson, sími 894-8677, sydriklauf@simnet.is Sveinbjörg Helgadóttir, sími 846-3222, sveinbjorghelgadottir707@gmail.com
1. sep

Kaffihlaðborð Hjálparinnar í Funaborg

Hið margrómaða kaffihlaðborð kvenfélagsins verður haldið í Funaborg, sunnudaginn 1. september kl. 13:30, borðin svigna undan kræsingum. Verð fyrir fullorðna 3.000kr, grunnskólabörn 1.500kr og yngri börn borða frítt