Flýtilyklar
Nýtt á vefnum
Álagningarseðlar 2010
- Lesa meira
Vetraropnun sundlaugar 2010-2011
- Lesa meira
Göngur og réttir 2010
- Lesa meira
Nýjustu fréttir
-
Álagningarseðlar 2010
föstudagur 27. ágú. 2010 10:22 - Lestrar 16Hér að neðan má sjá gangnaseðla fyrir fjárgöngur í Eyjafjarðarsveit. Á þeim koma fram þeir aðilar sem sleppa fé á afrétt auk Fjallskilasjóðs. Göngur eru lagðar á fjáreigendur eftir fjárfjölda, þó mismunandi eftir deildum og svæðum. Á seðlunum má sjá hvar er um 1/2 dagsverk að ræða og hvað gert er ráð fyrir mörgum mönnum í 1. og 2. göngur.
Öngulstaðadeild fjárgöngur
Saurbæjardeild fjárgöngur
Hrafnagilsdeild fjárgöngur
-
Vetraropnun sundlaugar 2010-2011
fimmtudagur 26. ágú. 2010 12:02 - Lestrar 26
Mánudaga – föstudaga 06:30 – 20:00
Laugardaga – sunnudaga 10:00 – 17:00Fjölskyldan í sund – frítt fyrir 15 ára og yngri
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
-
Göngur og réttir 2010
þriðjudagur 17. ágú. 2010 13:28 - Lestrar 601. göngur verða 4.-5. sept. nema norðan Fiskilækjar þar verða þær 11. sept.
Réttað verður laugardaginn 4. september í Hraungerðisrétt og Möðruvallarétt þegar gangnamenn koma að, og sunnudaginn 5. september í Þverárrétt ytri kl. 10.
2. göngur verða 18.-19. sept.Hrossasmölun verður 1.-2. október.
Stóðréttir verða laugardaginn 2. okt. í Þverárrétt ytri kl. 10 og Melgerðismelarétt kl. 13.
-
Aðsóknarmet slegin á Handverkshátíð
sunnudagur 8. ágú. 2010 09:51 - Lestrar 53Það má með sanni segja að Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla hafi farið vel af stað þessa fyrstu tvo daga. Aðsóknarmet voru slegin strax fyrsta daginn. Hátíðin verður opin í dag sunnudag og á morgun mánudag klukkan 12-19. Fjöldi viðburða verða á dagskrá en hæst ber að nefna svokallaðan brunaslöngubolta en sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar mun etja kappi við nágrannasveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu. Leikar hefjast klukkan 14:30. Rúningur, tískusýningar, söguþorp, fegurðarsamkeppni landnámshænsna og fleira hafa glatt gesti hátíðarinna og mun gera næstu tvo daga. Á hátíðarsamkomu í gærkvöldi voru verðlaun veitt fyrir sölubás ársins en Volcano design og Krista design fengu þann titil. Einnig er Handverksmaður ársins 2010 valinn hvert ár og nú var það Ragnar Arason rennismiður frá Höfn í Hornafirði sem fékk þennan eftirsóknarverða titil.
-
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar skorar á nágranna sína
miðvikudagur 4. ágú. 2010 03:01 - Lestrar 57Um næstu helgi verður Eyjaförður undirlagður í hátíðum en Handverkshátíð verður haldin dagana 6.-9.ágúst. Meðal viðburða í tengslum við hátíðina verður brunaslöngubolti þar sem sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu munu takast á. Leikirnir fara fram á fótboltavellinum við hátíðarsvæðið n. k. sunnudag og hefjast kl. 14:30. Búist er við fjörugum kappleik. Sveitarstjórnir sem taka þátt eru Grýtubakkahreppur, Svalbarðasstrandahreppur, Hörgárbyggð, Akureyri og Eyjafjarðarsveit.
Brunaslöngubolti fer þannig fram að spilað er á fótboltavelli með tvö mörk. Markmaður hvors liðs fær brunaslöngu sem nýta skal til varnar. Liðin eiga svo að keppast við að skora mark hjá andstæðingnum og þá sérstaklega að komast framhjá brunaslöngumarkmanninum.



