Eyjafjarðarsveit Norðurland - North Iceland

Heimasíða Eyjafjarðarsveitar

Flýtilyklar

Nýtt á vefnum

Nýjustu fréttir

  • Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2011, síðari umræða

    miðvikudagur 16. maí. 2012 08:48 - Lestrar 4

    Rekstrarniðurstaða Eyjafjarðarsveitar A og B hluta var jákvæð um kr. 35.096.000.- og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um kr. 49.170.000.-  Fjárfesting  A og B hluta var  kr. 119.064.000.-  Ekki voru tekin nein ný lán á árinu en eldri lán greidd niður um kr. 32.970.000.-   Skuldahlutfall Eyjafjarðarsveitar A og B hluta er 49,9%.  Launagreiðslur voru 47% af heildartekjum á móti 46,2% árið 2010.


  • Smámunasafnið

    þriðjudagur 15. maí. 2012 13:10 - Lestrar 4

    Sumaropnun Smámunasafnsins hófst 15. maí og stendur til 15. September. Opið alla daga milli kl. 13 og 18 sama hvað dagurinn heitir.  Að venju er getraun í gangi ,,Hvað átti Jón A. Jónsson marga penna?“ Þú horfir á safnið og giskar, skrifar svo svarið á blað og lætur í viðeigandi kassa. Laugardaginn 19. maí verður ,,Safnvörðurinn,, afhjúpaður. Hann er gerður af félögum í List án landamæra.
    Verið velkomin í forvitnilega heimsókn, Smámunasafnið


  • Jódísarstaðir, Eyjafjarðarsveit, deiliskipulag

    þriðjudagur 15. maí. 2012 10:17 - Lestrar 15

    Í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar, 17. apríl 2012, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi íbúðarreits ÍS15 að Jódísarstöðum, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Deiliskipulagstillaga


  • Atvinna - Skólastjóri Hrafnagilsskóla

    mánudagur 14. maí. 2012 12:38 - Lestrar 13

    Hrafnagilsskóli Eyjafjarðarsveit Eyjafjarðarsveit auglýsir starf skólastjóra Hrafnagilsskóla laust til umsóknar. Hrafnagilsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með um 250 nemendum og starfsmenn skólans eru nokkuð á sjötta tuginn. Fyrirtækið Capacent Ráðningar  sér um ráðningarferlið fyrir sveitarfélagið.

    Auglýsingu um starfið má sjá hér.

     

     


  • Opnun tilboða í matseld fyrir Hrafnagilsskóla

    miðvikudagur 9. maí. 2012 13:38 - Lestrar 26
    Miðvikudaginn 9. maí kl. 13:30, voru opnuð tilboð í matseld fyrir Hrafnagilsskóla.
    Tilboðið miðast við þrjú ár.

    Eftirfarandi tilboð barst:

    Rósmarín ehf. kr. 92.574.900.-

Mynd augnabliksins

Glumur3af4-05.jpg

Póstlistar


Auglýsingablað

Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar gefur út auglýsingablað sem dreift er um sveitarfélagið einu sinni í viku. Blaðið er hugsað fyrir litlar auglýsingar frá félögum, fyrirtækjum og einstaklingum í sveitinni og/eða því sem snýr að íbúum sveitarfélagsins.
Auglýsingar þurfa að berast skrifstofu Eyjafjarðarsveitar fyrir kl. 9 á miðvikudagsmorgnum, nema annað sé auglýst.
Hægt er að senda auglýsingar með tölvupósti á esveit hjá esveit.is




Fjölmenningarsetur

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
  • Blátt
  • Svart

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf